top of page
Helgi

Um mig

Ég heiti Helgi Valdimar Viðarsson Biering og er þjóðfræðingur að mennt. Ég er einnig skjalfræðingur og vélvirki. Ég er borinn og barnfæddur suðurnesjamaður. Ólst upp í Vogum á Vatnsleysu og bý í Keflavík (Reykjanesbæ). Ég er giftur og á tvö börn og þrjú barnabörn. Ég er mikill útivistarmaður og hef lagt að baki þó nokkur fjöll á Íslandi. Eins er ég frekar fróður um sögu Suðurnesja. Ég er sjálfstætt starfandi þjóðfræðingur sem tek að mér að gera húsakannanir og önnur tilfallandi verk. Má þar nefna meðal annars að vera ráðgjafi fyrir söfn og sýningar.

Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að vinna við nokkur spennandi verkefni síðastliðin ár. Ég hef starfað sem safnstjóri í tveim söfnum og komið að uppsetningum margra mjög áhugaverðra sýninga s.s. Hlustað á Hafið og Fast þeir sóttu sjóinn. Bátasafn Gríms Karlssonar. Einnig hef ég unnið að nokkrum húsakönnunum.

Viljið þið fá frekari upplýsingar um verkefni mín er best að hafa samband og við ræðum saman.

Um mig: About

6604424

©2021 by Húsakönnun. Proudly created with Wix.com

bottom of page